Fram fékk Akureyri í heimsókn í Safamýrina í 15. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Fram hefur leikið vel það sem af er tímabili og sat í þriðja sæti deildarinnar með 18 stig fyrir leik liðanna, á meðan Akureyri hefur verið að sækja í sig veðrið og hafði 10 stig í sjöunda sæti deildarinnar.
Leiknum lyktaði með jafntefli, en lokatölur í leiknum urðu 26:26.
Þorgrímur Smári Ólafsson og Arnar Freyr Arnarsson voru markahæstir í liði heimamanna með sex mörk hvor, en Hörður Másson var var hins vegar atkvæðamestur í liði gestanna að norðan með sjö mörk.
Kristófer Fannar Guðmundsson varði níu skot í marki Fram á meðan Hreiðar Levý Guðmundsson átti stórleik í marki Akureyrar og varði 20 skot.
Fram | 26:26 | Akureyri | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Leik lokið Jafntefli í dramatískum leik. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |