Frábær sigur hjá Aroni og félögum

Aron Pálmarsson að skora fyrir Veszprem.
Aron Pálmarsson að skora fyrir Veszprem. Ljósmynd/Melczer Zsolt

Ungverska liðið Veszprém með Aron Pálmarsson innanborðs vann í dag frábæran sigur gegn Paris SG, 28:20, í Meistaradeildinni en leikið var á heimavelli Veszprém.

Aron skoraði 4 mörk fyrir sína menn en markahæstur var Momir Ilic með 10 mörk. Daniel Narcisse skoraði 4 mörk fyrir Parísarliðið og þeir Nikola Karabatic og Igor Vori skoruðu 3 mörk hvor. Róbert Gunnarsson komst ekki á blað fyrir Paris SG.

Með sigrinum er Veszprém komið í toppsæti A-riðilsins, er stigi á undan Paris SG og Flensburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert