Öruggt hjá Barcelona í Danmörku

Guðjón Valur skoraði eitt mark í dag.
Guðjón Valur skoraði eitt mark í dag. ANDREU DALMAU

Guðjón Valur Sigurðsson hafði hægt um sig þegar Barcelona sigraði Kolding, 36:28, á útivelli í Meistaradeildinni í handknattleik. Guðjón skoraði einungis eitt mark í leiknum.

Barcelona er eftir sigurinn í efsta sæti B-riðils með 15 stig en Kolding er á botni riðilsins. 

Leikurinn var jafn lengst af en gestirnir frá Barcelona höfðu eins marks forystu að loknum fyrri hálfleik, 16:15. Um miðjan síðari hálfleik skoruðu gestirnir 12 mörk gegn fjórum heimamanna og gerðu þar með út um leikinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert