Guðjón Valur markahæstur

Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði.
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði. mbl.is/Golli

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona unnu í kvöld sinn 74. sigur í röð í spænsku 1. deildinni í handknattleik. Þeir voru þó undir í leiknum, sem var gegn Villa de Aranda, eftir fyrri hálfleik.

Staðan í hálfleik var 14:13 en Börsungar náðu fljótt frumkvæðinu í seinni hálfleik og unnu að lokum stórsigur, 38:26.

Guðjón Valur var markahæstur í leiknum með 8 mörk í aðeins 9 skottilraunum. Víctor Tomás kom næstur með 6 mörk.

Barcelona er með 24 stig í efsta sæti deildarinnar en Naturhouse La Rioja kemur næst með 21 stig. Villa de Aranda er í 6. sæti með 15 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert