Florentina hættir eftir tímabilið

Florentina Stanciu.
Florentina Stanciu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Landsliðsmarkvörður Íslands í handknattleik og leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild kvenna handknattleik, Florentina Stanciu, mun leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.

„Þetta verður síðasta árið mitt sem leikmaður í handbolta,“ sagði Florentina í helgarblaði DV.

Florentina hefur um árabil verið verið besti markvörður landsins og þótt víðar væri leitað en hún hyggst flytja aftur til Rúmeníu eftir tímabilið með fjölskyldu sinni þaðan sem hún kom árið 2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert