Theodór með 13 mörk og ÍBV áfram í bikarnum

Theodór Sigurbjörnsson var í miklum ham í kvöld.
Theodór Sigurbjörnsson var í miklum ham í kvöld. mbl.is/Eggert

ÍBV átti ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik í kvöld.

ÍBV burstaði 1. deildarlið HK í Eyjum, 37:25, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 19:9. Theodór Sigurbjörnsson skoraði 13 mörk fyrir Eyjamenn, Einar Sverrisson 8 og Grétar Eyþórsson 5. Hjá HK var Andri Helgason markahæstur með 8 mörk og Egill Björgvinsson skoraði 5.

ÍBV mætir Val í átta liða úrslitunum á heimavelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert