Veszprém upp að hlið Vardar

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. © Melczer Zsolt

Ungverska meistaraliðið Veszprém komst upp að hlið Vardar í Austur-Evrópudeildinni í handknattleik karla í kvöld með því að vinna stóran sigur á Nexe Nasice frá Króatíu, 39:21, á heimavelli. Veszprém er nú með 34 stig eftir 12 leiki eins og Vardar, sem hinsvegar hefur leikið 14 leiki.

Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir Veszprém í leiknum sem var nánast einstefna frá upphafi til enda, slíkir voru yfirburðir ungverska liðsins. Staðan var 22:10 að loknum fyrri hálfleik. Mate Lakei skoraði átta mörk fyrir Veszprém og var markahæstur. Momir Ilic og Gasper Marguc voru næstir á eftir með sex  mörk hvor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert