Stigið á eftir að hjálpa okkur

„Við vorum með yfirhöndina allan og áttu möguleika á að vinna. En þrátt fyrir að það tækist ekki þá er ég stoltur af strákunum. Ég þigg eitt stig á móti ÍBV, það á eftir að hjálpa okkur mikið," sagði Bjarni Fritzson, annar þjálfari ÍR-liðsins eftir jafntefli, 25:25, á heimavelli gegn ÍBV í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld í Austurbergi.

„Við höfum æft mjög vel í fríinu í deildinni undanfarnar vikur og menn eru tilbúnir að leggja mikið á sig á næstu vikum," sagði Bjarni.

Nánar er rætt við Bjarna á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert