Alfreð Gíslason, þjálfari þýska meistaraliðsins Kiel, hefur klófest króatíska handknattleiksmanninn Blazenko Lackovic frá Vardar í Makedóníu. Hinn 35 ára gamli Króati hefur samið við Kiel til eins og hálfs árs.
Hann kemur til félagsins strax og verður gjaldgengur með liðinu í næstu viku þegar keppni hefst á nýjan leik í þýsku 1. deildinni. Lackovic er ætlað að styrkja lið Kiel en margir leikmenn eru meiddir og til þess að leysa vandann reyndi Kiel m.a. að kaupa Aron Pálmarsson frá Veszprém. Ekkert var að kaupunum, í bili að minnsta kosti.
Lackovic þekkir vel til í Þýskalandi en hann lék um árabil þar í landi, fyrst með Flensburg en síðar HSV Hamburg.