Róbert og Arnór í átta liða úrslit

Róbert Gunnarsson t.h. skoraði þrjú mörk í kvöld í bikarleik.
Róbert Gunnarsson t.h. skoraði þrjú mörk í kvöld í bikarleik. FRANCK FIFE

Róbert Gunnarsson og Arnór Atlason eru komnir áfram í 8-liða úrslit frönsku bikarkeppninnar með liðum sínum. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson og samherjar þeirra í Nimes eru hinsvegar úr leik þetta árið. 

Róbert og félagar í meistaraliðinu PSG unnu stóran sigur á Mulhouse, 45:27, á heimavelli. Róbert skoraði þrjú mörk úr jafn mörgum skottilraunum. Daniel Narcisse og Samuel Honrubia skoruðu sex mörk hvor fyrir PSG sem hafði mikla yfirburði í leiknum. 

Saint Raphaël, sem Arnór Atlason leikur með, vann Billére naumlega í gærkvöldi, 29:28. Tölfræði þess leiks liggur ekki fyrir.

Ásgeir Örn og Snorri Steinn skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Nimes þegar liðið tapaði í kvöld fyrir Chartres, 30:26, á heimavelli. Snorri skoraði þrjú marka sinna úr vítaköstum. Honum gekk illa að skora í leiknum og notaði 13 skot til þess að skora mörkin fjögur. Ásgeir Örn átti níu skot á markið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert