Áttum svör við öllu í vörninni

Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna var að vonum sáttur með sigur sinna manna á ÍBV í Eyjum í dag. Valsmenn unnu með tveimur mörkum, 25:23, eftir hörkuleik. 

„Ég er mjög ánægður, hrikalega gaman að koma á frábæran útivöll og ná að klára mjög gott lið. Mér fannst þeir vera líklegri í fyrri hálfleik svo fannst mér vörnin okkar mjög góð í seinni hálfleik og mér fannst við vera með svör við öllu þar," sagði Óskar við mbl.is eftir leik en með sigrinum komst Valur áfram í undanúrslit bikarkeppni HSÍ.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Óskar Bjarni Óskarsson.
Óskar Bjarni Óskarsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert