Díana gerði 11 mörk í sigri Fjölnis

Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði 11 mörk í kvöld.
Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði 11 mörk í kvöld. mbl.is/Golli

Örvhenta skyttan Díana Kristín Sigmarsdóttir átti stórleik og skoraði 11 mörk þegar Fjölnir vann Aftureldingu 28:27 í jöfnum leik í Grafarvoginum í dag í Olís-deild kvenna í handbolta. 

Díana var langmarkahæst í liði Fjölnis en gamla kempan Hekla Daðadóttir var með 10 mörk fyrir Aftureldingu. 

Lauk þar með 18. umferð deildarinnar og er Fjölnir með 10 stig í 10. sæti en Afturelding er í 14. og neðsta sæti með 5 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert