Ólafur verður fyrirliði

Ólafur Guðmundsson verður fyrirliði Kristiandsands í kvöld.
Ólafur Guðmundsson verður fyrirliði Kristiandsands í kvöld. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Ólafur Andrés Guðmundsson, landsliðsmaður í handknattleik, verður fyrirliði sænska meistaraliðsins Kristianstad í kvöld þegar það tekur á móti Drott í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. 

Ólafur hefur verið varafyrirliði Kristiandsandsliðsins síðan hann kom til þess undir lok síðasta árs. Johan Jepson, fyrirliði, er forfallaður í kvöld og þar með hleypur Ólafur í skarðið. 

Kristiansand er efst í sænsku úrvalsdeildinni með 40 stig eftir 21 leik. Drott-liðið má hinsvegar muna sinn fífil fegurri en það rekur lestina í deildinni um þessar mundir með þrjú stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert