Canellas yfirgefur Kiel

Joan Canellas í leik með Spánverjum gegn Dönum á EM …
Joan Canellas í leik með Spánverjum gegn Dönum á EM í Póllandi. AFP

Joan Canellas leikstjórnandi þýska meistaraliðsins Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar, mun yfirgefa liðið eftir tímabilið.

Spænski landsliðsmaðurinn, sem er 29 ára gamall, hefur gert þriggja ára samning við lið RK Vardar í Makedóníu og gengur hann til liðs við félagið næsta sumar en hann kom til Kiel frá Hamburg árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert