Stjarnan í höllina

Helena Rut Örvarsdóttir, var markahæst í liði Stjörnunnar ásamt Sólveigu …
Helena Rut Örvarsdóttir, var markahæst í liði Stjörnunnar ásamt Sólveigu Láru Kjærnested. Eva Björk Ægisdóttir

Stjarnan bar sigurorð af ÍR í átta liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna í handknattleik í TM-höllinni í Garðabænum í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi og Stjarnan fór að lokum með tveggja marka sigur af hólmi. Lokatölur í leiknum urðu 25:23 Stjörnunni í vil. 

Helena Rut Örvarsdóttir og Sólveig Lára Kjærnested voru markahæstar í liði Stjörnunnar með sex mörk hvor, en Sólveig Lára Kristjánsdóttir og Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir voru atkvæðamestar í liði ÍR sömuleiðis með sex mörk. 

Stjarnan varð þar af leiðandi fyrsta liðið til þess að tryggja sér þátttökurétt í undanúrslitum keppninnar, en tveir aðrir leikir í keppninni eru á dagskrá í kvöld. Annars vegar mætast Fylkir og Fram í Fylkishöllinni og hins vegar Haukar og HK í Schenker-höllinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert