Aron og félagar sigruðu í Tyrklandi

Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk í dag.
Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk í dag. © Melczer Zsolt

Aron Pálmarsson og samherjar hans í ungverska meistaraliðinu Veszprém sigruðu tyrkneska liðið Besiktas, 38:34 í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag.

Veszprém var sex mörk yfir að loknum fyrri hálfleik, 21:15, og sigur þeirra var í raun aldrei í hættu. Aron lék vel í Tyrklandi og skoraði fimm mörk í leiknum. 

Eftir leikinn er Veszprém í 2. sæti A-riðils Meistaradeildarinnar með 17 stig, stigi á eftir franska stórliðinu PSG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert