Tíu marka tap hjá lærisveinum Alfreðs

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. JONAS GUETTLER

Þýska liðið Kiel tapaði fyrir Flensburg-Handewitt 37:27 í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld en Alfreð Gíslason þjálfari Kiel.

Flensburg var aðeins tveimur mörkum yfir í hálfleik en liðið gekk á lagið í þeim síðari og gekk frá Kiel.

Þetta var fimmta tap Kiel í Meistaradeildinni en liðið hefur nú unnið fimm leiki, tapað fimm leikjum og gert eitt jafntefli. Liðið situr í 5. sæti deildarinnar, góðum sjö stigum á eftir Flensburg-Handewitt.

Næsti leikur Kiel í Meistaradeildinni er eftir þrjá daga gegn Orien Wisla Plock.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert