Arnór Atlason og félagar hans í Saint-Raphaël eiga góða möguleika á að komast í undanúrslit EHF-bikarsins í handknattleik eftir sigur á heimavelli gegn Chambéry, 30:25, í fyrri leik frönsku liðanna í átta liða úrslitunum í kvöld.
Arnór skoraði eitt mark í leiknum en liðin mætast aftur í Chambéry um næstu helgi. Fjögurra liða úrslitin fara fram í Nantes í Frakklandi.
Granollers vann Bjerringbro-Silkeborg frá Danmörku, 30:24, í fyrri leik liðanna á Spáni og í viðureign þýskra liða vann Göppingen heimasigur á Magdeburg, 31:25. Granollers og Göppingen eru því líkleg til að fara áfram, eins og Saint-Raphaël.