„Það er sama hvernig maður vinnur. Það þarf ekki endilega að vera fallegt,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, leikmaður Gróttu eftir annan eins marks sigur liðsins á Fram í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag.
„Auðvitað er ég ánægð með sigurinn því við lékum ekki nægilega vel á löngum köflum og þurfum að skoða leik okkar betur þannig að við verðum stöðugri út heilan leik. Við fengum mjög oft tvær tilraunir í sókninni og þó svo Fram hafi verið betra liðið lengst af þá náðum við alltaf að skora um síðar,“ sagði Anna Úrsúla.