Aron í liði umferðarinnar

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Melczer Zsolt

Aron Pálmarsson er í liði umferðarinnar í Meistaradeild Evrópu í handknattleik en Aron átti stórgóðan leik í sigri Veszprém gegn Vardar í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Aron stjórnaði leik sinna manna eins og herforingi og skoraði sjö mörk úr átta skotum en Veszprém fagnaði þriggja marka sigri í Skopje, 29:26, og á þar að leiðandi mjög góða möguleika á að tryggja sér farseðilinn á Final Four helgina í Köln.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert