Guðjón er tilnefndur

Guðjón Valur Sigurðsson hefur leikið vel með Barcelona í vetur.
Guðjón Valur Sigurðsson hefur leikið vel með Barcelona í vetur. Ljósmynd/ehf-euro.com

Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður Spánar- og Evrópumeistara Barcelona, er eini Íslendingurinn sem er tilnefndur í liði ársins í Meistaradeild Evrópu í handknattleik.

Guðjón er einn fimm leikmanna sem tilnefndir eru sem besti vinstri hornamaðurinn en hinir fjórir eru Timur Dibirov, Uwe Gensheimer, Manuel Strlek og Jonas Källman. Barcelona tapaði fyrir Kiel með fimm marka mun í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildinnar en seinni leikurinn fer fram í Barcelona á laugardaginn. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert