Róbert Hostert á heimleið

Róbert Aron Hostert varð Íslandsmeistari með ÍBV.
Róbert Aron Hostert varð Íslandsmeistari með ÍBV. mbl.is/Ómar

99% líkur eru á að Róbert Aron Hostert spili í Olísdeild karla í handknattleik á næsta tímabili, en Róbert hefur tvö undanfarin ár spilað með danska úrvalsdeildarliðinu Mors/Thy. Róberti stóð til boða að framlengja samning sinn við danska liðið en hann hafnaði tilboði félagsins og að öllu óbreyttu leikur hann á Íslandi á næstu leiktíð.

„Við erum í viðræðum við ÍBV og Stjörnuna og það ætti að skýrast mjög fljótlega hvar Róbert mun spila,“ sagði Arnar Theodórsson, umboðsmaður Róberts Arons, við Morgunblaðið í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert