„Klárum þessa viku með stæl“

Janus Daði Smárason í leik með Haukum á dögunum.
Janus Daði Smárason í leik með Haukum á dögunum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Aftur komum við í Mosfellsbæ og kvittum fyrir skituna á heimavelli. Dagurinn í gær var alls ekki skemmtilegur, svo þetta var ljúft í dag,“ sagði Janus Daði Smárason, leikstjórnandi Hauka eftir magnaðan 30:29 sigur á Aftureldingu í fjórða leik þessara liða í úrslitaeinvíginu í handknattleik í dag en leikið var í Mosfellsbæ.

Janus var frábær í sigri Hauka í dag en leikurinn var framlengdur eftir æsispennandi lokasekúndur. Nú er ljóst að liðin mætast í Schenker-höllinni í Hafnarfirði á fimmtudag í hreinum úrslitaleik um titilinn.

„Við komumst fram úr í dag en ég verð að hrósa þeim, komu alltaf til baka og eru ótrúlega flottir og við gerum okkur erfitt fyrir. Við förum illa með þrjú dauðafæri í stöðunni 14:11 og gátum aðeins ýtt þeim frá okkur en hann ver helvíti vel í markinu og það gerði okkur erfitt fyrir,“ sagði Janus við mbl.is.

„Það sem hefur helst komið á óvart í þessu einvígi er að þetta eru allt útisigrar. Það er ekki alveg það sem maður bjóst við í byrjun en Mosfellingar tóku Valsara og það er ákveðið statement hjá þeim og við vissum að þetta yrði alvöru einvígi.“

„Við klárum þessa viku með stæl og svo fær maður  fína viku í pásu til að recovery. Það er spurning hvort maður hafi stolt í að mæta á þetta hóf ef maður tapar en við sýndum breidd í dag. Egill kemur og skorar mark, sterkur inn af bekknum og ferskur. Einar og Þröstur koma inna, Grétar frábær í markinu. Þetta er bara frábær liðsheild.“

Tjörvi Þorgeirsson meiddist illa í einvíginu gegn ÍBV í undanúrslitum og gat því ekki verið með Haukum í úrslitaeinvíginu, en liðið hefur spjarað sig vel án hans. Hann er þó alltaf til staðar fyrir leikmennina.

„Ég hef Tjörva alltaf uppi í stúku ef ég þarf að ræða við manninn og það hjálpar mikið. Það er erfiðara að segja en að gera að mæta aftur hérna og við komum og slökkvum aðeins í þeim. Sýnir frábæra samheldni og liðsheild,“ sagði Janus að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert