Guðjón Valur og félagar lyftu bikarnum

Barcelona fagnar í kvöld. Guðjón Valur er lengst til hægri.
Barcelona fagnar í kvöld. Guðjón Valur er lengst til hægri. Ljósmynd/Twitter

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona fengu í kvöld spænska meistarabikarinn afhentan að loknum tíu marka sigri á Ademar León, 37:27.

Guðjón Valur skoraði eitt marka Barcelona í leiknum, sem er með fullt hús stiga eftir 25 umferðir. Það var því rík ástæða til að fagna í leikslok þegar bikarinn fór á loft eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert