Haukar styrkja sig

Elín Anna Baldursdóttir í leik með HK.
Elín Anna Baldursdóttir í leik með HK. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Elín Anna Baldursdóttir er gengin til liðs við handknattleikslið Hauka og gerir hún tveggja ára samning við félagið. Elín Anna lék með FH á síðustu leiktíð, en hún hefur einnig leikið með ÍBV og uppeldisfélagi sínu HK.

Haukar urðu deildarmeistarar á nýafstaðinni leiktíð, en töpuðu síðan fyrir Stjörnunni í undanúrslitaeinvígi deildarinnar. Þá tapaði Stjarnan fyrir Gróttu í undanúrslitum Coca Cola-bikarkeppninnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert