Leicester með Arsenal mann í sigtinu

Claudio Ranieri.
Claudio Ranieri. AFP

Englandsmeistarar Leicester City hafa áhuga á að fá kantmanninn Alex Oxlade Chamberlain til liðs við sig frá Arsenal.

Claudio Ranieri stjóri Leicester er með Chamberlain á óskalista sínum ef marka má fréttir enska blaðsins Mirror.

Chamberlain, sem er 22 ára gamall, varð fyrir meiðslum á hné í febrúar og missir af Evrópumótinu í Frakklandi í sumar en hann verður búinn að jafna sig áður en tímabilið hefst í ensku úrvalsdeildinni í haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert