Ólafur yfirgefur Aalborg

Ólafur Gústafsson í leik með íslenska landsliðinu.
Ólafur Gústafsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Ómar

Framtíðin er óljós hjá handboltamanninum Ólafi Gústafssyni en ljóst er að hann leikur ekki meira með danska úrvalsdeildarliðinu Aalborg Håndbold. Ólafur hefur verið í herbúðum liðsins í tvö ár en hefur lítið spilað með því á þessum tíma, þar sem langvarandi og erfið meiðsli á báðum hnjám hafa haldið honum frá keppni.

„Ég er nú bara pakka niður núna,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær, en kærasta hans, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, hefur ákveðið að flytja sig um set og ganga til liðs við Midtjylland frá Randers, eins og fram kom á mbl.is í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert