Egill og Sigurbergur fengu silfur

Sigurbergur Sveinsson var með fjögur mörk í kvöld.
Sigurbergur Sveinsson var með fjögur mörk í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Bjerringbro/Silkeborg varð í kvöld danskur meistari í handknattleik þrátt fyrir 26:25 tap fyrir Tvis Holstebro en þetta var síðari leikurinn í rimmunni. Bjerringbro/Silkeborg vann samanlagt 52:46.

Bjerringbro/Silkeborg vann fyrri leikinn 27:20 og því ljóst að Holstebro hefði þurft að vinna upp sjö marka forskot.

Sigurbergur Sveinsson leikur með  Holstebro en hann var með fjögur mörk í kvöld. Egill Magnússon var hins vegar ekki í leikmannahópnum.

Sigurbergur gengur til liðs við ÍBV í sumar en hann samdi við félagið á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert