Of mörg mistök komu í bakið á okkur

Noka Serdarusic, þjálfari PSG, á hliðarlínunni í dag í tapleiknum …
Noka Serdarusic, þjálfari PSG, á hliðarlínunni í dag í tapleiknum við Vive Kielce í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. AFP

„Þetta var erfiður leikur, við börðumst vel en gerðum allt of mörg mistök og þau komu í bakið á okkur þegar upp var staðið,” sagði Noka Serdarusic, þjálfari PSG, daufur í bragði eftir að lið hans tapaði fyrir Vive Kielce í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í Lanxess-Arena í Köln í dag, 28:26.

Serdarusic sagði að fyrst og fremst hefði sóknarleikur PSG-liðsins brugðist að þessu sinni. Liðið væri gott en því hefði ekki tekist að sýna sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi, sagði Serdarusic enn fremur. Hann var nokkuð gagnrýndur fyrir 5/1 varnarleik liðsins í leiknum á blaðamannafundi í leikslok. Hann varði ákvörðun sína, sagði varnarleikinn ekki hafa orðið liðinu að falli heldur sóknarleikinn. „Þetta var rétti varnarleikurinn gegn Kielce, hins vegar skoruðum við aðeins 26 mörk og það dugði ekki," sagði Serdarusic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert