Jónatan Þór Magnússon var í dag formlega kynntur til leiks sem nýr þjálfari KA/Þórs í handknattleik, en eins og mbl.is greindi frá fyrr í þessum mánuði var hann í viðræðum við félagið. Hann skrifaði undir tveggja ára samning.
„Það er mikil tilhlökkun hjá mér og fjölskyldunni að koma heim,“ sagði Jónatan við heimasíðu KA, en lið KA/Þórs mun spila í 1. deild kvenna næsta vetur eftir að ákveðið var að skipta deildinni upp.
Jónatan var lengi leikmaður með KA og svo Akureyri. Hann fór til Kristiansund í Noregi sem leikmaður og tók síðan við sem þjálfari karlaliðs félagsins en hann hefur stýrt því undanfarin þrjú ár.
Jónatan mun samhliða þjálfa fleiri flokka en honum til aðstoðar verður Þorvaldur Þorvaldsson sem einnig lék með KA og síðar Akureyri.