Norskur liðsstyrkur til Fylkis

Christine Rishaug fyrir miðri mynd í rauðum búningi.
Christine Rishaug fyrir miðri mynd í rauðum búningi.

Handknattleiksdeild Fylkis hefur samið við norska leikmanninn Christine Rishaug um að leika með kvennaliði félagsins næstu tvö árin í Olís-deildinni.

Rishaug er fædd 17. mars 1987. Hún er miðjumaður sem jafnframt getur vel leyst aðrar stöður á vellinum.  Hún er frá Molde og þar spilaði hún undir stjórn Einars Jónssonar frá 2013 til 2015.  Á síðustu leiktíð var hún  hins vegar spilandi þjálfari hjá Midsund IL í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert