Haukar bæta við sig leikmanni

Guðrún Erla Bjarnadóttir í Haukabúningnum eftir undirskriftina.
Guðrún Erla Bjarnadóttir í Haukabúningnum eftir undirskriftina. Ljósmynd/haukar.is

Haukar sem urðu deildarmeistarar í Olísdeild kvenna í handknattleik á síðastliðinni leiktíð hefur gert samning til næstu tveggja ára við Guðrúnu Erlu Bjarnadóttur. 

Guðrún Erla er uppalin HK-stelpa en færði sig yfir í Stjörnuna fyrir tveimur árum og gengur nú til liðs við Hauka. Guðrún Erla hefur mest leikið sem miðjumaður síðustu ár en getur leyst fleiri stöður eins og skyttu og vinstra horn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert