Andri Berg á förum frá FH

Andri Berg Haraldsson í leik með FH gegn Fram á …
Andri Berg Haraldsson í leik með FH gegn Fram á síðasta tímabili. mbl.is/Styrmir Kári

Andri Berg Haraldsson, einn af burðarásum handknattleiksliðs FH undanfarin ár, mun ekki leika með liðinu á komandi tímabili.

Þetta kom fram á vefsíðunni fimmeinn.is í dag.

„Þeir höfðu ekki áhuga á að hafa mig áfram og í dag er framhaldið óráðið. Þetta er hið furðulegasta mál þykir mér og kaldar kveðjur frá uppeldisfélaginu,“ sagði Andri í samtali við Fimmeinn.is í dag.

Andri Berg lék 20 leiki með FH á síðustu leiktíð og skoraði 22 mörk en FH-ingar urðu í 6. sæti á síðustu leiktíð og biðu lægri hlut gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert