Heimakonur unnu Ragnarsmótið

Selfossliðið eftir sigurinn.
Selfossliðið eftir sigurinn. Ljósmynd/Selfoss

Í kvöld lauk Ragnarsmóti kvenna í handbolta á Selfossi sem var haldið í annað sinn. Sigurvegarar mótsins voru Selfosskonur en þær höfðu betur gegn liði Vals í síðasta leiknum með 33 mörk gegn 26. 

Í síðustu umferðinni léku einnig Haukar gegn Fylki og unnu með 22 mörkum gegn 21. Markahæsti leikmaður mótsins var Christine Rishaug í Fylki með 27 mörk.

 Lokastaða móts:

  1. Selfoss 5 stig
  2. Valur 4 stig
  3. Haukar 3 stig
  4. Fylkir 0 stig
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert