Dramatískt jafntefli Löwen

Guðjón Valur, Alexander og félagar kræktu í gott stig í …
Guðjón Valur, Alexander og félagar kræktu í gott stig í dag.

Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og félagar þeirra í þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen gerðu jafntefli, 28:28, við Pick Szeged frá Ungverjalandi í fyrsta leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta í dag.

Leikurinn fór fram í Ungverjalandi og voru heimamenn með undirtökin lengst af, þótt munurinn væri ekki mikill. Pick Szeged var einu marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:12.

Heimamenn náðu tveggja marka forskoti þegar mínúta var eftir af leiknum. Löwen minnkaði muninn, stal boltanum í lokin og Kim Ekdahl du Rietz jafnaði metin á síðustu sekúndum leiksins.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Löwen í dag en Alexander Petersson var ekki á meðal markaskorara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert