Gunnar framlengir við Haukana

Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka.
Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka. mbl.is/Eva Björk

Gunnar Magnússon þjálfari Íslandsmeistaraliðs Hauka í handknattleik karla hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2020.

Gunnar tók við þjálfun Haukaliðsins af Petreki Jóhannessyni fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa verið við stjórnvölinn hjá ÍBV þar sem gerði liðið að Íslandsmeisturum líkt og hann gerði með Haukunum á síðustu leiktíð.

Á vef Hauka kemur eftirfarandi fram;

„Gunnar er á sínu öðru tímabili með liðið og hefur samhliða því starfa við Afreksskóla Hauka þar sem hann kemur að þjálfun okkar framtíðar leikmanna. Með fremlengingu á samningnum hafa Haukar stígið skref í áframhaldandi uppbyggingu innan Handknattleiksdeildarinnar.

Þorgeir Haraldsson formaður handknattleiksdeild Hauka var mjög ánægður að hafa framlengt við Gunnar og hann sagði að með þessu skrefi væru Haukarnir að horfa til framtíðar hjá m.fl. karla og til uppbyggingar yngri leikmanna félagsins.

Gunnar Magnússon var einnig ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. Gunnar sagði að þetta hefði verið auðveld ákvörðun og honum liði mjög vel í félaginu. Hér er umgjörðin frábært í kringum liðið og stuðningurinn sem við höfum fengið er mjög góður. Það er frábært að vinna með öllu þessu fólki sem starfa hjá Haukum hvort sem það er innan eða utan vallar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert