Aron vann gömlu félagana

Aron Pálmarsson í leik með Veszprém.
Aron Pálmarsson í leik með Veszprém. Ljósmynd/Veszprém

Aron Pálmarsson fagnaði sigri gegn sínum gömlu félögum í Kiel þegar ungverska liðið Veszprém hrósaði sigri gegn lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Meistaradeild Evrópu í dag.

Veszprém hafði betur, 21:19, eftir að hafa verið 13:10 yfir í hálfleik. Aron skoraði 2 mörk í leiknum en Gabor Ancsin og Gasper Marcuc voru markahæstir í liði ungversku meistaranna með 5 mörk hvor. Marko Vujin var markahæstur í liði Kiel með 7 mörk.

Veszprém er með 6 stig eftir fjóra leiki í A-riðli en Kiel 4. Barcelona trónir á toppnum með 8 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert