Jóhann valinn maður leiksins

Jóhann Reynir Gunnlaugsson.
Jóhann Reynir Gunnlaugsson. mbl.is/Eggert

Jóhann Reynir Gunnlaugsson var valinn maður leiksins þegar lið hans Lemvig Thyboren lagði Odden, 33:22, í dönsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi.

Jóhann Reynir, sem gekk til liðs við danska félagið í sumar eftir að hafa leikið með Víkingi hér á landi, er að ná sér eftir meiðsli og skoraði fjögur mörk fyrir liðið. Á heimasíðu þess er sagt að Jóhann hafi verið að spila sinn besta leik í treyju liðsins.

Lemvig var sex mörkum yfir í hálfleik, 10:16, en landaði að lokum öruggum ellefu marka sigri eins og áður sagði. Liðið er í öðru sæti 1. deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert