Selfoss tryggði sér sín fyrstu stig í Olísdeild kvenna í vetur þegar liðið lagði Fylki að velli, 30:24, í leik liðanna í fimmtu umferð deildarinnar á Selfossi í dag. Liðin voru bæði stigalaus eftir fyrstu fjóra leik sína í deildinni í vetur fyrir leik liðanna í dag.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Kristrún Steinþórsdóttir voru markahæstar í liði Selfoss með átta mörk hvor, en Thea Imani Sturludóttir var atkvæðamest í liði gestanna úr Árbænum með átta mörk.
Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 8, Kristrún Steinþórsdóttir 8, Carmen Palamariu 7, Adina Maria Ghidoarca 4, Dijana Radojevic 2, Hulda Dís Þrastardóttir 1.
Mörk Fylkis: Thea Imani Sturludóttir 8, Þuríður Guðjónsdóttir 5, Christine Rishaug 4, Hildur Björnsdóttir 2, Þórunn Friðriksdóttir 2, Hildur Karen Jóhannsdóttir 1, Kristjana Björk Steinarsdóttir 1, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.