Danska liðið Team Hvis Holstebro tapaði fyrir franska liðinu Nantes 35:25 í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag. Vignir Svavarsson gerði tvö mörk fyrir Holstebro.
Holstebro var auðveld bráð fyrir Nantes í dag en franska liðið leiddi með sex mörkum í hálfleik og tókst að auka forystuna í þeim síðari.
Vignir Svavarsson var með tvö mörk fyrir danska liðið í dag en Egill Magnússon var ekki í leikmannahópnum.
Holstebro er í neðsta sæti D-riðils með 1 stig.