Öruggur útisigur hjá Midtjylland

Rut Jónsdóttir
Rut Jónsdóttir mbl.is/Styrmir Kári

Rut Jónsdóttir og samherjar hennar í Midtjylland unnu í kvöld fínan útisigur á Silkeborg í danska handboltanum. 

Midtjylland sigraði 26:19 en liðið sleit sig frá Silkeborg í síðari hálfleik því í leikhléi var staðan 9:8 fyrir Midtjylland. 

Íslenska landsliðskonan skoraði tvö mörk fyrir Midtjylland af hægri vængnum í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert