Kiel í toppsætið

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk í sigri Löwen í …
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk í sigri Löwen í kvöld. AFP

Kiel og Rhein-Neckar Löwen hrósuðu bæði sigri í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, hafði betur gegn Hannover-Burgdorf, 27:26, á heimavelli sínum. Rúnar Kárason skoraði 3 af mörkum Burgdorf í leiknum.

Löwen vann öruggan sigur á Stuttgart á útivelli, 35:27. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson 3.

Kiel er þar með komið á topp deildarinnar. Liðið hefur 16 stig en Löwen, Füchse Berlín og Flensburg hafa öll 14 stig. Kiel hefur leikið einum leik meira en Löwen og Füchse Berlín og tveimur meira en Flensburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert