Oddur fór mikinn sem fyrr

Oddur Gretarsson.
Oddur Gretarsson. Ljósmynd/tvemsdetten.com

Oddur Gretarsson fór enn á ný fyrir liði Emsdetten þegar liðið vann útisigur á Empor Rostock, 35:30, í þýsku 2. deildinni í handknattleik í dag.

Oddur skoraði 8 mörk fyrir Emsdetten og var næstmarkahæstur, en Emsdetten var fjórum mörkum yfir í hálfleik 35:30.

Emsdetten er í fjórtánda sæti deildarinnar með sjö stig eftir níu leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert