Rhein-Neckar Löwen tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik þegar liðið lagði Erlangen í sextán liða úrslitunum, 29:23.
Löwen var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15:11, og var sigurinn aldrei í hættu í síðari hálfleik. Alexander Petersson skoraði sex marka Löwen úr níu skotum og var markahæstur. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk úr sex skotum.
Löwen er því komið í átta liða úrslitin eins og Flensburg, Kiel, Friesenheim, Hannover, Melsungen, Leipzig og Balingen.
VIERTELFINALE! Mit einem souveränen 29:23-Sieg gegen den HC Erlangen ziehen wir in die nächste Runde ein. #LoewenLive pic.twitter.com/Fx7XfUwoxF
— Rhein-Neckar Löwen (@RNLoewen) October 27, 2016