Breytingar á kvennalandsliðinu

Thea Imani Sturludóttir.
Thea Imani Sturludóttir. mbl.is/Golli

Axel Stefánsson, landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna í handknattleik, hefur neyðst til þess að gera breytingar á leikmannahópi sínum fyrir forkeppnisriðil heimsmeistaramótsins sem fram fer í Færeyjum um næstu helgi.

Sjá frétt mbl.is: Rakel Dögg kölluð inn eftir þrjú ár

Steinunn Björnsdóttir, Fram, og Heiða Ingólfsdóttir, Stjörnunni, eru báðar meiddar og komast því ekki með í þetta verkefni. Þá hefur Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Haukum, einnig dregið sig úr æfingahópnum vegna meiðsla.

Í þeirra stað hefur Axel valið Theu Imani Sturludóttur, Fylki, og Guðnýju Jenný Ásmundsdóttur, ÍBV.

Liðið er nú í lokaundirbúningi sínum fyrir forkeppnina. Þar mætir íslenska liðið Austurríki, Makedóníu og heimastúlkum frá Færeyjum. Efstu tvö liðin komast í umspilsleiki um laust sæti á HM í Þýskalandi 2017.

Leikjaplanið má sjá hér:

Fös. 2. des.          18.00     Ísland – Austurríki
Lau. 3. des.          17.00     Ísland – Færeyjar
Sun. 4. des.         16.00     Ísland – Makedónía

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert