Valsmenn fara til Svartfjallalands

Leikmenn og þjálfarar Vals eftir leikinn við Haslum ytra á …
Leikmenn og þjálfarar Vals eftir leikinn við Haslum ytra á dögunum. Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs

Bikarmeistarar Vals í handknattleik karla mæta liði Partizan 1949 frá Svartfjallalandi í 16-liða úrslitum í Áskorendabikar Evrópu.

Valsmenn voru í efri styrkleikaflokki þegar dregið var í morgun, en liðið lagði Haslum frá Noregi í tveimur leikjum í 32ja liða úrslitunum.

Lið Partizan lagði liðið Spes frá Kýpur í 32ja liða úrslitunum samtals 49:43. Liðin gerðu jafntefli á Kýpur en Svartfellingar unnu heimaleikinn 27:21.

Fyrri leikurinn fer fram 18. eða 19. febrúar og sá síðari viku seinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert