Vignir í góðum hópi í Meistaradeildinni

Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. AFP

Vignir Svavarsson, leikmaður danska handknattleiksliðsins TTH Hol­ste­bro, er í liði umferðarinnar í Meistaradeild Evrópu fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Braga frá Portúgal um síðustu helgi.

Vignir átti stórleik á línunni og var markahæstur sinna manna í leiknum með 8 mörk en þetta var annar sigur liðsins í riðlakeppninni.

Lið 8. umferðar lítur þannig út:

Markvörður: Thierry Omeyer (PSG)
Vinstra horn: Angel Fernandez (La Rioja)
Vinstri skytta: Mathieu Grebille (Montpellier)
Leikstjórnandi: Gabor Csaszar (Kadetten Schaffhausen)
Hægri skytta: Blaz Janc (Celje)
Hægra horn: Tamas Ivancsik (Elverum)
Línumaður: Vignir Svarvarsson (TTH Holstebro)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert