Kiel ekki í vandræðum

Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. Ljósmynd/THW Kiel

Kiel var ekki í vandræðum með Melsungen í þýska handboltanum í kvöld en þar stefnir í æsispennandi baráttu um meistaratitilinn. 

Kiel vann sjö marka útisigur á Melsungen 30:23 og hefur unnið tólf af fyrstu þrettán leikjum sínum í deildinni undir stjórn Alfreðs Gíslasonar.

Forskotið er þó ekki mikið því bæði Flensburg og Rhein-Neckar Löwen hafa unnið ellefu af fyrstu tólf leikjum sínum og eiga því leik til góða á Kiel. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert