Pinnonen seinheppinn

Eistneska skyttan Mikk Pinnonen er seinheppinn á þessu tímabili í handboltanum og var studdur af leikvelli í bikarleik ÍR og Aftureldingar.

Pinnonen var lengi frá í haust vegna meiðsla í læri en er nýfarinn að leika á ný. Netmiðillinn Fimmeinn.is hefur eftir Einari Andra Einarssyni, þjálfara Aftureldingar, að um meiðsli í hæl sé að ræða. Einar vissi ekki hversu alvarleg meiðslin eru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert