Fram styrkti stöðu sína á toppnum

Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði fimm mörk í dag.
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði fimm mörk í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Fram endurheimti fjögurra stiga forskot sitt á toppi Olís-deildar kvenna með 26:18 sigri á Fylki í Safamýrinni í dag. 

Stjarnan minnkaði forystuna niður í tvö stig með sigri á Val í dag en Framkonur voru fljótar að svara fyrir það með öruggum sigri. 

Hálfleikstölur voru 11:6 Fram í vil og átti botnliðið ekki mikinn möguleika í toppliðið. 

Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði sex mörk fyrir Fram á meðan átta mörk Theu Imani Sturludóttur dugðu skammt. 

Markaskorarar Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 6, Ragnheiður Júlíusdóttir 5, Hildur Þorgeirsdóttir 5, Steinunn Björnsdóttir 4, Marthe Sördal 2, Arna Þyri Ólafsdóttir 2, Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir 1, Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 1.

Markaskorarar Fylkis: Thea Imani Sturludóttir 8, Christine Rishaug 5, Þuríður Guðjónsdóttir 2, Kristjana Björk Steinarsdóttir 1, Vera Pálsdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert